Jæja ég er loksins búin að fá að vita úr prófunum og ég náði þeim en ekki nógu vel til að halda áfram þannig að ég þarf að hætta í skólanum og reyna aftur í haust

sem að er ógeðslega fúllt því að það var svo gaman núna þegar maður var loksins kominn í verklegt og þannig fjör.. En þetta verður bara vonadi tekið með trompi í haust.
En sökum þess ákvað ég að skrá mig í fjarnám í Efnafræði 313 til að vera betur sett með efnafræðina var ekki alveg að skilja hana í haust

Svo var ekkert annað en að fara að leita sér að vinnu og byrjaði ég á mánudaginn að gera umsóknir og fékk svo svar í dag. Á að mæta á mánudaginn og þá á að kenna mér og svo verð ég að vinna frá 11-19 alla daga og aðra hverja helgi. Sem að er mjög fínt. Bjóst sko ekki við því að fá vinnu neitt í bráð.. en mamma segir að ég hafi fengið vinnu þvi að ég er orðin svo gömul...hehe. En annars er bara búinn að vera dugnaður þessa vikuna og farið í ræktina á hverjum degi.
Lórey og Ásgeir eru svo að koma til okkar á mrg og ætla að gista hjá okkur aðra nótt þannig að það verður farið einhvað út að borða, fengið sér í glas og einhvað meira fjör..
Svo erum við frænkurnar búnar að plana annað frænkukvöld föstudaginn 6 mars heima hjá Helgu og er maður strax farinn að hlakka til.. enda var það bara gaman síðast.
Munið svo eftir Bóndadeginum á morgunn.. veit ekki alveg hvað ég ætla að gera. Í fyrra gerði ég bara eins og þeir í VKB sögðu gaf Arnóri kippu af bjór og svo var nautasteik í kvöldmatinn ætli maður geri ekki einhvað svipað á morgunn...
Hildur Björk